Strandveiðar fá sérstakt frumvarp í uppstokkun byggðakerfisins
What the source reports
Innviðaráðuneytið hefur sett í samráðsgátt áform um endurskoðun á lögum um byggðakerfi sjávarútvegsins. Stefnt er að því að vinna tvö aðskilin frumvörp um úrræði sem áður heyrðu til sömu laga um byggðatengdar veiðiheimildir en ráðuneytið kallar eftir umsögnum áður en gengið verður frá frumvarpsdrögum. Miðað við það sem fram kemur um áætlanir ráðuneytisins í samráðsgáttinni verða strandveiðar teknar út fyrir sviga með sér frumvarpi. Hitt frumvarpið mun fjalla um breytingar á öðrum úrræðum innan 5,3% kerfisins svonefnda, en það eru línuívilnun, skel- og rækjubætur og bæði almennur og sértækur byggðakvóti. Frumvarp um strandveiðar verður lagt fram á næstunni en frumvarp um önnur úrræði verður lagt fram eftir áramót. Hvað er byggðakerfi sjávarútvegs? Til að útskýra muninn á þessum ráðstöfunum í stuttu máli má segja að almenna byggðakvótanum sé úthlutað eftir sveitarfélögum.
Sértæki byggðakvótinn er hins vegar tæki sem Byggðastofnun hefur til að efla byggðalög í bráðum og alvarlegum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Línuívilnun er viðbótaraflaheimild til útgerða sem eru með fólk í vinnu í beitningu í landi og skel- og rækjubætur eru þorskkvóti sem útdeilt er á skip sem voru með kvóta í skel eða rækju áður en veiðin í þessum tegundum brast. Strandveiðar eru svo leið fyrir sjómenn til að veiða á sumrin án þess að þurfa að fjárfesta í kvóta. Þær voru settar á til að bregðast við áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna þess eðlis að íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið takmarkaði aðgengi að atvinnugreininni að því marki að það bryti á frelsi einstaklinga til að velja sér atvinnu. Tryggja grunn- og viðbótaraflamagn Í frumvarpi um strandveiðar er útlit fyrir að innviðaráðherra ætli að hverfa frá því fyrirkomulagi að úthlutað aflamagn ráði dagafjölda. Kerfinu verði breytt…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗