Stefna að 2,8 milljarða afgangi á borgarsjóði
What the source reports
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir næsta ár og áætlun til næstu fimm ára voru kynnt í dag. Stefnt er að því að borgarsjóður skili 2,8 milljarða króna afgangi á næsta ári og að 12,9 milljarða króna afgangur verði á rekstri samstæðu borgarinnar, það er að segja borgarsjóðs og fyrirtækja í eigu borgarinnar.
Samkvæmt útkomuspá borgarinnar verður 6,6 milljarða króna halli á rekstri borgarinnar í ár. Gangi hún eftir og markmið næsta árs verður viðsnúningurinn 9,4 milljarðar króna. Borgarsjóður fjárfestir fyrir 23,6 milljarða króna á næsta ári, samkvæmt áætlun næsta árs. Gert er ráð fyrir 2,6 milljarða króna framlögum til byggingar og…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗