One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandStærsti leikurinn á Íslandi: Sóknin hans Arons gegn bestu vörninni

Stærsti leikurinn á Íslandi: Sóknin hans Arons gegn bestu vörninni

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 24, 2026, 11:00 AM
Stærsti leikurinn á Íslandi: Sóknin hans Arons gegn bestu vörninni
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 24, 2026, 11:00 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Í kvöld mætast erkifjendurnir FH og Haukar í efstu deild karla í handbolta. Einar Ingi Hrafnsson rýndi í leikinn og deildina í heild sinni í ár. Leikurinn er í Kaplakrika klukkan 19:30 í kvöld. Einar segir að þetta sé stærsti erkifjendaslagur á Íslandi. Þá telur hann að handbragð Arons Pálmarssonar sjáist strax á FH-liðinu. Þeir svarthvítu hafa keyrt upp hraðann í ár á meðan Haukaliðið er besta varnarlið landsins. Hvernig spilast þetta? Einar sér fyrir jafnan leik en vörnin ræður oft úrslitum í handboltaleikjum. Hann telur að FH-ingar þurfi að trekkja varnarleikinn í gang ef þeir ætli sér sigur. Haukar eru í efsta sæti með þrjá sigra eftir þrjár umferðir og FH er enn taplaust í öðru sæti með tvo sigra og eitt jafntefli. „Ég sé auðvitað leikinn bara fyrir mér sem mjög jafnan leik. Þetta snýst kannski svolítið um það hvort FH-ingarnir nái að stilla af einhvern varnarleik.

Styrkleiki FH-inga hefur verið sóknarleikur í upphafi tímabils, á meðan Haukarnir hafa verið það lið í deildinni sem hefur spilað besta varnarleikinn. Þannig að FH-ingar verða að „match-a“ vörn Hauka ef þeir ætla að vinna þann leik. “ Er þetta stærsti leikurinn í íslenskum handbolta? Einar telur ljóst að leikurinn sé sá stærsti í íslenskum handbolta. Það er iðulega vel mætt þegar erkifjendurnir mætast. Hann hefði þó viljað fá leikinn seinna á tímabilinu, þegar liðin eru komin á fullt flæði. Íþróttahöllin í Kaplakrika getur tekið allt að 3. 000 manns. „Eins og staðan er núna er þessum tveimur liðum spáð mikilli velgengni. Þeim er spáð þessum topp þremur sætum og eru í efstu tveimur núna. “ „Það er kannski smá leiðinlegt að fá þennan leik svona snemma á tímabilinu. Maður hefði kannski viljað sjá liðin vera búin að prófa sig aðeins betur en þetta er stærsti erkifjendaslagurinn sem er á hverju ári í…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS