One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandSpyrnur ungmenna reglulega tilkynntar til lögreglu

Spyrnur ungmenna reglulega tilkynntar til lögreglu

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 22, 2026, 5:51 PM
Spyrnur ungmenna reglulega tilkynntar til lögreglu
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 22, 2026, 5:51 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Hörður Lilliendahl, varðstjóri í umferðadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglu gera sitt besta til að sporna við hraðaakstri. Ungt fólk og umferðin er yfirskrift umferðarþings Samgöngustofu sem fram fór í dag. Sérfræðingar frá lögreglu, Samgöngustofu og Háskóla Íslands ræddu þar hvernig stuðla mætti að ábyrgri þátttöku ungmenna í umferðinni. Mikil umræða hefur verið um hraðaakstur ungmenna eftir að fjögur ungmenni létust í tveimur slysum á þessu ári. „Við fáum náttúrulega tilkynningar um að krakkarnir séu að hittast á einhverjum ákveðnum stöðum og jafnvel að spyrna,“ segir Hörður. „Þá reynum við að bregðast við og látum sjá okkur á svæðinu og þá náttúrulega erum við búin að eyðileggja þennan stað. En þá færa þau sig náttúrulega á einhvern annan stað og við getum ekki haldið endalaust í hendurnar á þeim og við erum ekki nógu margir til að vera allsstaðar.

Þannig að þau náttúrulega finna sér leiðir til að gera þetta, en þetta er hættulegt. “ Tímaspursmál hvenær alvarlegt slys verður vegna rafmagnskrossara Hörður segir tilkomu svokallaðra rafmagnskrossara eina helstu breytinguna hjá ungmennum í umferðinni í dag. Þeir eru auglýstir sem vélhjól sem takmarkast við 25 kílómetra hraða. Auðvelt sé að eiga við hjólin svo þau komist hraðar. „En þessi hjól þegar búið er að breyta þeim þá eru þau stórhættuleg, þau komast allt of hratt og eru bara stórhættuleg fyrir krakkana og gangandi vegfarendur,“ segir Hörður. „Þannig að þetta er eiginlega bara tímaspursmál hvenær verður alvarlegt slys á svona hjóli. “ Mikilvægt að tala ekki niður til ungs fólks Ungmenni á ólíkum aldri komu einnig fram á þinginu og deildu sinni reynslu, þar á meðal Eva Steinsen, framhaldsskólanemi. „Ég var að tala um hvernig það er að vera 18 ára í umferðinni og hvernig við upplifum umferðina sem…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS