Spor í öskunni er sigurmynd RIFF
What the source reports
Kvikmyndin Spor í öskunni ( La Gradiva ) hlaut Gullna lundann, aðalverðlaun Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík, RIFF, í dag. João Pedro Rodrigues, Halldóra Geirharðsdóttir og Ísold Uggadóttir sátu í dómnefndinni. Einnig voru veitt verðlaun fyrir bestu stuttmyndirnar og fyrir kvikmyndir í tveimur flokkum; Annarri framtíð og Vitrunum. Er það til viðbótar við verðlaun dómnefndar unga fólksins. Sigurmyndirnar eru eftirfarandi: Gullni lundinn (aðalverðlaun RIFF) : Spor í öskunni ( La Gradiva ) eftir Marine Atlan. Besta íslenska stuttmyndin: Sundruð ( Hold it together ) eftir Fan Sissoko. Besta íslenska nemastuttmyndin: Til hamingju, Fáviti ( Congratulations, Asshole ) eftir Orra Guðmundsson. Besta alþjóðlega stuttmyndin: Leitin að hvíta tjaldinu ( Nothing Happens After Your Absence ).
Gullna eggið (besta stuttmyndin sem tekur þátt í kvikmyndasmiðju RIFF): Skilin eftir ( Left Behind ) eftir Yannis Karpouzis. Verðlaun dómnefndar unga fólksins: Partýpabbi ( Club Kid ) eftir Jordan Firstman. Vitranir – besta myndin: Spor í öskunni ( La Gradiva ) eftir Marine Atlan. Önnur framtíð – besta myndin: Ef gæfan lofar ( Hvis lykken vender ) eftir Camille Bildsøe. Verðlaunuð fyrir einstakt tilfinninganæmi Spor í öskunni er frönsk-ítölsk kvikmynd eftir franska leikstjórann Marine Atlan. Atlan hefur einkum starfað á bakvið kvikmyndatökuvélina sem kvikmyndatökustjóri en Spor í öskunni er önnur kvikmynd hennar í fullri lengd sem leikstjóri. Kvikmyndin fjallar um bekk framhaldsskólanema sem ferðast til Pompeii til að skoða rústirnar og líkin sem eldfjallið Vesúvíus hefur varðveitt undir ösku. Hún hlaut bæði Gullna lundann og verðlaun í flokki Vitrana. „Fyrir einstakt tilfinninganæmi og hæfileikann til að fanga ósagða strauma milli fólks heiðrar dómnefndin verk sem rýnir af næmni í…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗