Slitu blaðamannafundi Heimis vegna hegðunar blaðamanns frá Ísrael
What the source reports
Írland og Ísrael mætast í Serbíu á morgun í B-deild Þjóðadeildar karla í fótbolta. Mikið hefur gengið á í aðdraganda beggja leikja liðanna í Þjóðadeildinni og í dag sauð upp úr á blaðamannafundi hjá Heimi Hallgrímssyni sem er landsliðsþjálfari Íra. Atvikið má sjá hér neðar í fréttinni. Leikurinn telst heimaleikur Íra en írska knattspyrnusambandið, FAI, ákvað að færa hann frá Írlandi vegna öryggis- og skipulagsáskorana sem sambandið taldi geta haft áhrif á framkvæmd leiksins. Leikið verður fyrir luktum dyrum á TSC Arena í Backa Tapola í Serbíu. Mikil andstaða hefur verið á Írlandi við að landsliðið leiki gegn Ísrael vegna stríðsins á Gaza og hafa mótmæli fylgt leikjum Íra að undanförnu. Heimaleikur Írlands gegn Austurríki sl. fimmtudag var meðal annars stöðvaður tímabundið þegar mótmælendur köstuðu tennisboltum með palestínska fánanum inn á völlinn.
Mikil spenna á blaðamannafundi Heimis Spennan var einnig greinileg á blaðamannafundi Heimis í Serbíu í dag. Heimir hafði í rúmar ellefu mínútur svarað spurningum fjölmiðla, meðal annars um leikinn, mikið álag á leikmenn í þessum landsleikjaglugga og 2-2 jafnteflið við Austurríki á fimmtudag, þegar umræðan snerist. Einn blaðamaður reyndi meðal annars að fá Heimi til að tjá sig um atvik sem varð á miðvikudag í flugi frá Dubai til Tel Aviv. Þar réðst aðstoðarflugmaður á flugmann vélarinnar en farþegum tókst að yfirbuga árásarmanninn og ná stjórn á aðstæðum um borð. Ísraelsk yfirvöld telja árásina tilraun til hryðjuverks. Ásakanir ganga á víxl um kynþáttaníð Svo bar á góma rannsókn vegna ásakana um kynþáttaníð í tengslum við fyrri leik Írlands og Ísraels í Þjóðadeildinni sem Írar unnu 3-0 um síðustu helgi. Írska knattspyrnusambandið rannsakar ásakanir um að Adam Idah, framherji Írlands, hafi orðið fyrir kynþáttaníði af hálfu…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗