Sleggjunni slengt á Kristrúnu
What the source reports
„Þetta er lykilatriði núna og ábyrg stjórnvöld gera þetta, ég átta mig alveg á því að þetta er ekkert ofboðslega vinsælt en þessi ríkisstjórn er bara öðruvísi gerð. “ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var gestur í Kastljósi kvöldsins. Kristún fullyrti í stefnuræðu sinni á Alþingi í gær að stjórn landsins væri í traustum höndum þrátt fyrir verðbólgu og vexti og hatrammar deilur um Evrópumál síðustu vikurnar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Sleggjan umtalaða Sleggja sem Kristrún notaði í kosningabaráttu sinni fyrir Alþingiskosningar árið 2024 hefur vakið mikla umræðu en sleggjuna kvaðst Kristrún ætla að nota til þess að negla niður vextina.
Kristján Kristjánsson spurði Kristrúnu út í umrædda sleggju en Kristrún segir hallalaus fjárlög ríkisins sleggju út af fyrir sig. „Það er ástæðan fyrir því að við sögðum að við ætluðum að bæta þetta efnahagsástand með því að hætta að reka ríkið á yfirdrætti. “ Kristrún segir það taka tíma að koma sér inn í ríkisfjármálin, þá sé það líkt og að opna húdd á bíl og átta sig á því að gríðarlegir veikleikar séu uppsafnaðir í kerfinu. „Við erum að taka á því núna, við viljum ekki fara í mikinn niðurskurð en við erum samt í útgjaldaaðhaldi. “ Skilur kílómetragjalds-gremjuna Kílómetragjald á ökutæki var samþykkt á Alþingi í lok síðasta árs. Kílómetragjaldið var hækkað í seinustu viku. Kristrún segir að lengi hafi staðið til að setja á…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗