Skýtur skökku við að hagræða í rekstri bókasafna í ljósi niðurstaðna PISA
What the source reports
Það skýtur skökku við að borgin vilji hagræða í rekstri bókasafna þegar íslenskir nemendur koma verst út í lesskilningi á meðal OECD-ríkjanna samkvæmt PISA-könnuninni. Þetta segir stjórn Rithöfundasambands Íslands í yfirlýsingu.
Stjórnin gagnrýnir harðlega tillögu meirihluta menningarráðs Reykjavíkurborgar um að gerð verði heildstæð greining á rekstri, starfsemi og framtíðarskipulagi Borgarbókasafns Reykjavíkur. „Niðurstöðurnar ættu að gefa tilefni til að stórefla bókasöfnin, fjölga útibúum, gera þau aðgengilegri skólum og leikskólum, fjölga viðburðum þeirra og laða enn fleiri notendur að þeim,“ segir í yfirlýsingunni. RSÍ bendir á að Reykjavíkurborg hafi verið bókmenntaborg UNESCO síðan 2011. Ein forsenda þess sé að borgin reki öflug almenningsbókasöfn. Stjórnin…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗