One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandSkrópaði í menntaskóla til að fara í bíó á daginn

Skrópaði í menntaskóla til að fara í bíó á daginn

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 23, 2026, 8:00 AM
Skrópaði í menntaskóla til að fara í bíó á daginn
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 23, 2026, 8:00 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

RIFF, Reykjavík Film Festival, hefst á fimmtudaginn þegar opnunarhátíðin fer fram. Hinsta ferðin á K2, The Last First: Winter K2, er opnunarmynd hátíðarinnar í ár. Hún fjallar um tilraun Johns Snorra Sigurjónssonar og pakistönsku feðganna Muhammad Ali Sadpara og Sajid Sadpara til að klífa fjallið K2 að vetri til, fyrstir manna. John Snorri og Muhammad Ali biðu bana á fjallinu auk þriggja annarra fjallagarpa. Leikstjóri myndarinnar er Amir Bar-Lev. Myndin var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni fyrr á árinu. Hátíðin færir 265 kvikmyndir frá sextíu löndum og landsvæðum til Reykjavíkur í ár, þar af 66 myndir í fullri lengd og 199 stuttmyndir. Um 80% dagskrárinnar eru evrópskar framleiðslur eða samframleiðslur og 56% myndanna er leikstýrt af konum.

Á dagskránni eru þrettán heimsfrumsýningar, þrjár Evrópufrumsýningar og 33 Norðurlandafrumsýningar, þar sem sagðar eru sögur á tugum tungumála hvaðanæva að úr heiminum. Una Schram og Villi Neto litu við hjá Kristjáni Frey Halldórssyni í Helgarútgáfuna á Rás 2. Þau sögðu okkur frá því helsta í dagskránni sem er bæði fjölbreytt og metnaðarfull. Una er verkefnastjóri sérviðburða og sér um að skipuleggja viðburði á borð við hellabíó og hamborgaraveislu í kringum sýningu kvikmyndarinnar Pulp Fiction. Svo er það opnunarhóf og bransapartí og ég er í kynningarmálum líka. Villi hefur sinnt kynningarmálum af ýmsu tagi og segist í raun alltaf vera í startholunum. Ég labba inn þegar þess er krafist, ég reyni að vera til staðar. Þetta er algjör heiður, ótrúlega skemmtilegt að vera með og hitta allt þetta fólk. Hann á sér langa sögu með hátíðinni, frá því hann var í menntaskóla og fór að sækja hana stíft. Þegar ég var í MH voru alltaf margir dagar sem ég fór ekki í skólann til að eiga kvikmyndadag. Ég mætti snemma, um hádegi, svo ég var…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS