One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandSkoraði fyrir afa og ætlar ekki í indónesíska landsliðið

Skoraði fyrir afa og ætlar ekki í indónesíska landsliðið

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 24, 2026, 6:40 AM
Skoraði fyrir afa og ætlar ekki í indónesíska landsliðið
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 24, 2026, 6:40 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

„Í deildinni byrjaði ég fyrsta leikinn á miðjunni, svo í hægri vængbakverði og svo í vinstri vængbakverði,“ sagði fótboltamaðurinn Mikael Egill Ellertsson aðspurður um hvaða stöðu hann væri yfirleitt að spila með félagsliði sínu Genoa á Ítalíu. Hann þykir fjölhæfur leikmaður og er sjálfur ekki alveg viss hvaða staða hentar honum best: „Það er alltaf verið að spyrja mig út í þetta, bæði úti og hérna heima. Ég get eiginlega ekki svarað þessu en ég held mér líki best að vera á köntunum. “ Allt viðtalið við Mikael Egil má sjá hér í spilaranum: Knattspyrnumaðurinn Mikael Egill Ellertsson skoraði sitt annað landsliðsmark gegn Úkraínu í fyrra en hann var þá nýbúinn að missa afa sinn. Við settumst niður með Mikael og ræddum missinn, Indónesíutengingu hans og hvaða stöðu hann spilar. Tileinkaði markið afa sínum Ísland tók á móti Úkraínu í undankeppni HM fyrir tæpu ári.

Mikael skoraði fyrsta mark Íslands í 3-5 tapi og leit upp til himins í fagni sínu. „Ég missti afa minn tveim vikum áður þannig að þetta var svona fyrir hann eiginlega. Þetta var alveg smá erfitt, fólk kannski sér það ekki en ég reyni alltaf að fela þetta. Ég er ekki mikið að sýna tilfinningar en þetta var smá erfitt. “ Mikael er uppalinn Framari en fór einungis 16 ára gamall til SPAL á Ítalíu. „Þetta var bara gaman og erfitt. Ég var heppinn að vera með pabba og bróður minn með, það hjálpaði alveg mjög mikið. Þó það hafi kannski verið kostir og gallar við það. Fyrstu tvö árin voru smá ströggl með ítölskuna en um leið og ég byrjaði að tala hana þá fóru hlutirnir að gerast. “ Réttu skrefin ekki alltaf fram á við Mikael spilaði sína fyrstu leiki fyrir SPAL í næstefstu deild Ítalíu 2021. Stuttu seinna skrifaði hann undir hjá Spezia í efstu deild þó hann hafi klárað tímabilið á láni hjá SPAL. Ári síðar fór hann til…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS