Síðustu dagarnir á síldarvertíðinni
What the source reports
Síldarvertíðinni fer að ljúka hjá flestum uppsjávarútgerðum landsins. Kvótinn í norsk-íslenskri síld er að klárast og þá hafa sumar útgerðir jafnvel klárað kvóta í sumargotssíld líka. Uppsjávarskip Eskju, Aðalsteinn Jónsson, er á síldveiðum en skipið kom á miðin í fyrradag og tók fyrsta tog á Rauða torginu svonefnda, sem eru fiskimið austan við landið. Þegar fréttastofa náði sambandi við brúna var skipið þó komið nokkuð norðar í leit að síldinni. Þar stóð Þórhallur Hjaltason stýrimaður vaktina og segir hann misvel hafa gengið á vertíðinni.
„Hún hefur gengið svona þokkalega en þetta hefur verið svolítið svona hark,“ segir Þórhallur. „Það eru svona litlir blettir og fljótir að klárast og svo hefur veðrið ekki verið að hjálpa til heldur. “ Síldarstofnar Veiðar á norsk-íslenskri síld eru stundaðar frá lokum ágúst og fram í október. Í beinu framhaldi hefjast svo vanalega veiðar á íslensku sumargotssíldinni. Síldveiðar eru því úr tveimur aðskildum stofnum, sumargotssíld sem hrygnir í júlí við Ísland og norsk-íslensku vorgotssíldinni sem hrygnir við Noreg í febrúar og fram í apríl. Síðustu dagarnir Þórhallur segir síldina nú færa sig austar en Aðalsteinn Jónsson hefur veitt…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗