One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandSegist þurfa að troða ferðamönnum í rafbíla

Segist þurfa að troða ferðamönnum í rafbíla

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 22, 2026, 10:08 PM
Segist þurfa að troða ferðamönnum í rafbíla
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 22, 2026, 10:08 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Ríkisstjórnin vill setja hraðari rafvæðingu bílaflotans í forgang til að draga úr losun. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að bílaleigur ráði hvort þær verði í fararbroddi orkuskipta á Íslandi eða dragbítur. Bílaleigur hafi hingað til keypt hlutfallslega miklu færri rafmagnsbíla en almenningur. Eru bílaleigur að draga lappirnar eða ættu stjórnvöld að líta sér nær? Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds-Bílaleigu Akureyrar, og Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, teymisstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun, voru gestir Kastljóss í kvöld.

Forstjóri Bílaleigu Akureyrar segir bílaleigur ekki standa í vegi fyrir rafvæðingu bílaflotans heldur ferðamenn sem vilji ekki rafbíla. Teymisstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun segir enga tæknilega fyrirstöðu fyrir rafvæðingu bílaflota Íslands. „Eftirspurnin eftir þessum bílum er bara ekki næg,“ segir Steingrímur. Hann segir ferðamenn ekki vilja leigja rafbíla. Bílaleigan hafi prófað að bjóða upp á dýra rafbíla á sama verði og litla fólksbíla sem gangi fyrir bensíni en ferðamenn velji nær alltaf frekar bensínbíla. Margir ferðamannanna sem komi til landsins hafi ekki keyrt rafbíl áður og treysti ekki aðstæðum á Íslandi til að láta á það reyna. Að sögn Steingríms þarf að „troða…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS