Segir nú að stríðinu ljúki að loknum þingkosningum í Bandaríkjunum
What the source reports
Donald Trump forseti Bandaríkjanna telur að stríðinu við Íran ljúki um leið og þingkosningar í Bandaríkjunum verða afstaðnar í nóvember. Hann bætti við að olíuverð lækki ekki fyrr en þá. Þetta sagði forsetinn við fréttamenn á Andrews-herstöðinni áður en hann hélt á þing Repúblikanaflokksins í Dallas í gær.
Trump sagði að Íranar gætu ekki haldið stríðið út mikið lengur og þeir ætluðu að reyna að hafa áhrif á þingkosningarnar með þeim hætti að koma veikgeðja fólki til valda sem léti Írana afskiptalausa og leyfði þeim að eignast kjarnorkuvopn. Hann sagði að þrátt fyrir að Bandaríkin væru ekki að leita samninga við Írana gæti komið til samningaviðræðna. Helstu ráðgjafar Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu eru sagðir hafa varað hann við því að stríðið…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗