Segir Írisi Helgu enn vera að áreita sig
What the source reports
Maður sem segist hafa orðið fyrir áreiti af hendi Írisar Helgu Jónatansdóttur segir hana hafa valdið sér og fjölskyldu sinni miklum sálrænum skaða og að þau telji sig ekki örugg lengur. Hún sé enn að áreita þau. Tekin var skýrsla af fyrsta brotaþola í máli Írisar Helgu við framhald aðalmeðferðar í morgun. Íris Helga er sökuð um umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur mönnum, sambýliskonu eins þeirra, börnum tveggja þeirra og fjölskyldum. Maðurinn sagði að hegðun Írisar Helgu hefði valdið þeim mikilli hræðslu og kvíða. „Við þurftum alltaf að vera á varðbergi,“ sagði maðurinn. „Við gátum ekki upplifað eðlilega hversdagslega hluti eins og að hafa dyrnar ólæstar,“ sagði hann. Öryggistilfinning þeirra væri horfin. Ýmislegt undarlegt í fari Írisar Helgu Samband mannsins og Írisar Helgu hófst 2021 en því lauk í janúar 2022.
Maðurinn sagði að ýmislegt undarlegt í fari hennar hefði komið fram í sambandinu. „Hún gat ekki svarað hvort hún og barnsfaðir hennar væru enn saman,“ sagði maðurinn sem nefndi einnig að Íris Helga hefði sent honum skilaboð um að hún væri ólétt. Þá hefði hún orðið veik og þurft að leggjast inn á spítala og þurft járngjöf. Ýmislegt hafi ekki komið heim og saman og Íris Helga hafi átt erfitt með að svara spurningum. Þá hafi maðurinn heyrt af því að Íris Helga væri að tala illa um hann við vinkonur sínar. Setti upp öryggismyndavélar eftir atvik Fyrsta atvikið hafi verið þegar Íris Helga kom að heimili mannsins með blómavasa sem hún hafi brotið þar fyrir utan. Íris Helga tjáði sig um blómavasann við skýrslutöku í gær og viðurkenndi þá að hafa brotið vasann. Hann hafi verið stílaður á sig og dóttur sína en Íris Helga hefur sakað manninn um að hafa misnotað dóttur sína. Maðurinn neitar því. „Út frá þessu fer ég í Elko og kaupi öryggismyndavél og set hana upp 1.…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗