Sérfræðingar hafa valið besta skyr Norðurlanda — það er framleitt í Danmörku
What the source reports
Sérfræðingar hafa komist að niðurstöðu um hvaða skyr sé það gómsætasta á Norðurlöndum og það er ekki framleitt á Íslandi. Örfáum prósentustigum munar á því besta og næstbesta. Hillur stórmarkaða svigna undan skyrdollum af ýmsum gerðum frá fjölda framleiðenda. Mjólkurvöruframleiðendur sendu einn dómara hver til Alþjóðlegu matvælakeppninnar sem haldin var í danska bænum Herning sem smökkuðu og dæmdu gæði alls konar mjólkurafurða á borð við osta, smjör, jógúrt og skyr. Dómararnir störfuðu í hópum og mátu vörurnar út frá fjórum þáttum: útliti, áferð, lykt og bragði.
Þeir gáfu einkunn á kvarðandum einn til fimmtán. Mjög lítið skilur oft á milli hefur danska ríkisútvarpið hefur Jesper Frederiksen, fulltrúa Thise mjólkurvöruframleiðandans. Besta skyr Norðurlandanna er frá Arla og með vanillubragði og hafði til að bera rétta þykkt, áferð og sætu auk þess bragðs sem einkenna ber sýrðar mjólkurvörur. Það hlaut 14,6 stig og hreint Thise skyr hlaut 14,52 stig í öðru sæti. Það var lykt og bragð sem skar þar úr segði Frederiksen. Arla er stærsta samvinnufélag í mjólkuriðnaði í Evrópu. Thise hefur um árabil framleitt íslenskt skyr í umboði MS fyrir erlenda markaði, meðal annars undir vörumerkinu Ísey Skyr.…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗