One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Sér fram á óvissu- og óreiðuástand í rekstri borgarinnar

Sér fram á óvissu- og óreiðuástand í rekstri borgarinnar

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 4, 2026, 1:49 PM
Sér fram á óvissu- og óreiðuástand í rekstri borgarinnar
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 4, 2026, 1:49 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Borgarfulltrúi Vinstrisins segir nýja fjárhagsáætlun meirihlutans gefa til kynna að óvissu- og óreiðuástand sé fram undan í rekstri borgarinnar. Margt sé óskýrt og hagræðingartillögur séu óútfærðar. Fjárhagsáætlun meirihlutans óskýr og skorti yfirsýn Borgarstjórnarmeirihlutinn stefnir á að borgarsjóður skili 2,8 milljarða króna afgangi á næsta ári, samkvæmt fjárhagsáætlun sem kynnt var í gær. Á næstu fimm árum er stefnt að því að borgarsjóður verði rekinn með 16,8 milljarða króna afgangi. „Það er ýmislegt mjög óskýrt. Það skortir yfirsýn og það er talað um niðurskurð til þess að geta fjárfest í grunninnviðum.

En svo þegar maður rýnir í tölurnar þá erum við ekki að sjá það í þessari fjárhagsáætlun eða fjárfestingaáætlun,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins. „Þannig þetta er í raun svona óvissu- og óreiðuástand sem Vinstrið sér fram undan sem skrifast alfarið á þessa flokka. “ Þá eigi eftir að útfæra ýmsar hagræðingartillögur. „Sem dæmi þá er um rúmlega 900 milljónir hjá skóla- og frístundasviði sem á eftir að útfæra og það á við á fleiri sviðum, að það eigi eftir að útfæra ákveðinn niðurskurð og ekki liggur fyrir hvernig slíkt verði gert. “ Uppsagnir starfsmanna kosti meira til framtíðar Í lok síðasta mánaðar var ráðist í hagræðingaraðgerðir í borginni og tugum starfsmanna var sagt upp . Sanna segir slíkar aðgerðir vekja upp spurningar um hvaða skilaboð meirihlutinn sé að senda út þegar kemur að Reykjavíkurborg sem vinnustað. „Vinstrið hefur gagnrýnt þessar aðgerðir og sérstaklega hvað þetta er…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS