One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandRústir miðaldakirkju fundust á Grænlandi

Rústir miðaldakirkju fundust á Grænlandi

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 24, 2026, 7:17 AM
Rústir miðaldakirkju fundust á Grænlandi
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 24, 2026, 7:17 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Beinagrind sem fannst við fornleifauppgröft á Grænlandi í sumar staðfestir kenningar fræðimanna um að rústir sem eru þar nærri séu kirkjurústir. Ritzau fréttaveitan greinir frá. Fornleifafræðingar fundu beinagrindina í ágúst í Qinngua nærri Narsarsuaq, skammt frá Bröttuhlíð Eiríks rauða. Rúm 60 ár eru síðan kirkjurústir norrænna manna fundust síðast á Grænlandi. Þær kirkjur voru frá víkingatímanum en þessi kirkja er stærri og talið er líklegt að hún hafi verið byggð fyrir 1450. Töldu rústirnar vera af kirkju en enginn fannst kirkjugarðurinn Kenningar voru um að umræddar rústir væru kirkjurústir því rétthyrndur steinveggur er umhverfis steinbyggingu í miðjunni.

Það var erfitt að sannreyna að þetta væru kirkjurústir því enginn kirkjugarður fannst þar nærri. Fornleifauppgröftur fór fyrst fram á þessum stað árið 2000 og það var ekki fyrr en í sumar að beinagrind fannst þar nærri. Beinagrindin snéri höfði sínu í austurátt, sem tíðkast í gröfum kristinna manna, og þar með var sterk vísbending komin. Beinagrindin lá með hendurnar meðfram síðunum, sem gefur til kynna að hún hafi verið grafin snemma á miðöldum. Stærð kirkjunnar og margir höggnir steinar benda til tímabilsins 1100-1300. Skoða þarf svæðið í nýju ljósi Fjölmargar kirkjur norrænna manna og staðsetning þeirra eru nefndar í rituðum heimildum frá miðöldum. Frásögn af kirkju sem nefnd er „Kirkja undir Sólarfjöllum“ passar við landslagið og fjöllin þar sem rústirnar eru. Rústir…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS