Rússnesku óligarkarnir verða teknir af efnahagsþvingunarlista ESB
What the source reports
Lönd Evrópusambandsins hafa náð samkomulagi um að rússnesku ólígarkarnir Alisher Usmanov og Mikhail Friedman verði teknir af lista Evrópusambandsins yfir einstaklinga og stofnanir sem sæta efnahagsþvingunum Evrópusambandsins vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Yfir 3. 000 einstaklingar og fyrirtæki á listanum sæta frystingu eigna og takmörkunum á ferðafrelsi. Andriy Sybiga, utanríkisráðherra Úkraínu, segir ákvörðun ESB „skammarlega og óverjandi.
“ Hann sagði að nú væri fagnað í Moskvu því þetta væri það sem stjórnvöld vilji þar, refsileysi, niðurlægingu ESB og sundrung meðal Evrópuþjóða. Drógu neitunarvald sitt til baka Stjórnvöld í Lettlandi beittu neitunarvaldi gegn því að óligarkarnir tveir yrðu teknir af listanum. Því var tvísýnt um tíma í gær hvort samkomulag myndi nást í tæka tíð áður en refsiaðgerðirnar rynnu út á miðnætti. Að endingu féllust Lettar á að draga neitunarvald sitt til baka.…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗