Þristurinn verður á Akureyri
What the source reports
Fjölmenni var mætt á undirritun Þristavinafélagsins, umhverfis- og orkumálaráðherra, Flugsafns Íslands og Lands og Skógar á viljayfirlýsingu um framtíðarheimili Þristsins. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að vélin verði í góðum höndum á Akureyri. „Við erum í rauninni bara að formgera það að varðveisla á þessum einstaka safngrip, þessari stórmerkilegu flugvél, sem á sér mikla sögu, að ábyrgðin og eignarhaldið færist alfarið yfir til Flugsafns Íslands. Ég held að vélin sé í mjög góðum höndum hér. “ Framtíðarheimili einnar merkustu flugvélar Íslandssögunnar verður væntanlega á Akureyri. Þristavinafélagið segir mikilvægt að tryggja vörslu hennar um aldur og ævi.
DC-3 vélin, sem hefur nýst þjóðinni með margvíslegum hætti, kom fyrst til landsins árið 1943. Steinunn María Sveinsdóttir, safnstjóri Flugsafnsins, segir Þristinn laða að þúsundir gesta á ári hverju. „Fyrst og fremst er þetta mikil viðurkenning fyrir safnið, hversu mikið traust ríkið sýnir okkur í þessum efnum. Að treysta okkur fyrir varðveislu þessarar mikilvægu flugvélar í íslenskri flugsögu. Það eru mjög margir sem bera tilfinningar til þessarar vélar og eiga sögu sem tengist henni eða hafa komið að varðveislu hennar á einn eða annan hátt,“ segir Steinunn María. Flugmenn höfðu gaman af því að fljúga vélinni Sveinn Runólfsson, fyrrum landgræðslustjóri, fór þúsundir flugferða með Þristinum en Þristurinn…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗