Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
What the source reports
Langtímaatvinnuleysi er að aukast, segir forseti ASÍ sem telur stýrivexti Seðlabankans koma niður á samfélaginu öllu. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar segir mikilvægt að stefna áfram að hallalausum ríkisrekstri og styðja við peningastefnuna. 181 var sagt upp í hópuppsögnum í síðasta mánuði. Arna Lára Jónsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, voru gestir í Vikulokunum fyrir hádegi þar sem kjaramál og atvinnuleysi voru til umræðu. Forseti ASÍ segir galið að stýrivextir séu eins háir og þeir eru í ljósi efnahagsmála. Mælingar gefi til kynna að langtímaatvinnuleysi sé að aukast.
Skjóti skökku við að stytta bótatímabilið í dag Finnbjörn segir mælingar ASÍ gefa til kynna að langtímaatvinnuleysi sé að aukast. Ríflega 1. 700 manns hafi verið atvinnulausir í ár eða lengur. Um 1. 500 manns hafi verið það á síðasta ári. Atvinnuleysisbótatímabilið var áður 30 mánuðir en var stytt niður í 24 mánuði í sumar. „Þannig að við komum til með að sjá fólk detta út af atvinnuleysisbótum og þá er ekkert annað heldur en félagskerfi sveitarfélaganna sem bíður þeirra,“ segir Finnbjörn. Seðlabanki Íslands hafi kyrkingartak á atvinnulífinu með háum stýrivöxtum. „Það að við séum með rúmlega 3% raunvexti á milli verðbólgu og stýrivaxta er náttúrlega bara galið. Þetta hefur áhrif alls staðar vegna þess að ávöxtunarkrafan hækkar út af svona háum stýrivöxtum.…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗