Reyndust vera systur eftir áratugalanga vináttu
What the source reports
Meena Geltink og Minal Tijssen eru báðar fæddar snemma á níunda áratugnum í Mumbai á Indlandi. Þær voru ættleiddar af tveimur mismunandi barnaheimilum, þegar þær voru aðeins nokkurra mánaða gamlar af sitthvorum foreldrunum. Þær bjuggu skammt frá hvor annarri fyrstu æviárin í Hollandi án þess að vita af tilvist hinnar en kynntust sem unglingar á viðburði á vegum ættleiðingarstofunnar sem foreldrar þeirra notuðu.
Líkindi þeirra bæði í fasi og útliti voru óneitanleg og margir aðrir á viðburðinum höfðu orð á því. Misstu sambandið í 15 ár Stúlkurnar náðu vel saman, skiptust á símanúmerum og netföngum og þar með hófst áralöng vinátta. Þær skrifuðust mikið á og gátu rætt allt milli himins og jarðar og ávörpuðu gjarnan hvor aðra sem systur. En fyrir 15 árum misstu þær sambandið. Minal flutti til Frakklands og Meena varð önnum kafin eftir að hafa eignast sitt fyrsta barn. Árið 2017 tók Meena DNA-próf í von um að finna einhverja…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗