One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Reiði meðal lögreglumanna

Reiði meðal lögreglumanna

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 30, 2026, 3:28 PM
Reiði meðal lögreglumanna
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 30, 2026, 3:28 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Hótunum í garð lögreglumanna hefur fjölgað síðustu árin en þær virðast þó hafa litlar sem engar afleiðingar í för með sér. Lögreglumenn eru margir reiðir út í ákæruvaldið og dómstóla og upplifa að þeir fái enga réttarvernd í sínu starfi. Margir eru komnir með öryggismyndavélar fyrir utan heimili sín. Þetta sagði Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, í Síðdegisútvarpinu. Ríflega helmingur lögreglufólks hefur orðið fyrir ofbeldi eða hótunum í sínu starfi á síðustu fimm árum. Fjölnir segir þetta vera viðvarandi vandamál. „Við erum mjög víða með menn sem veifa bara plöggum framan í okkur eftir að hafa verið kærðir fyrir að ráðast á lögreglumenn vegna þess að þetta hafði engar afleiðingar, þetta var bara fellt niður. “ Reiði ríkir innan lögreglunnar yfir því hvernig tekið er á hótunum og ofbeldismálum í garð lögreglufólks.

Þrír menn sem kveiktu í bíl lögreglukonu þurfa ekki að afplána skilorðsbundinn fangelsisdóm. Brot gegn lögreglunni allri Þrír menn voru í vikunni dæmdir í sex til átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kveikt í Teslu sem rannsóknarlögreglukona hafði til umráða. Dómurinn taldi mönnunum öllum hafa verið kunnugt um að um hefnd væri að ræða. Í ljósi þess að refsingarnar eru skilorðsbundnar afplána mennirnir ekki fangelsisdóminn nema þeir brjóti aftur af sér. „Við lítum þannig á að það sé verið að ráðast á ríkið og valdstjórnina með þessu. Að þetta sé ekki brot bara gegn einstaklingi heldur lögreglunni allri. “ Fjölnir segir landssambandið ósátt við að ekki hafi verið ákært fyrir brot gegn valdstjórninni og að sakborningarnir hafi komist upp með að halda því fram að þeir hefðu ekki vitað að þetta væri bíll rannsóknarlögreglukonu. Lögreglukonan lét vita að henni hefði verið hótað og í kjölfarið hefðu mennirnir kveikt í bílnum…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS