Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta
What the source reports
Segja ástandið versna hratt Tólf vestrænar þjóðir, þar á meðal Íslendingar og aðrar norrænar þjóðir, tilkynntu í fyrradag um refsiaðgerðir sem beinast gegn landránsfólki og byggðum þess á Vesturbakka Jórdan-ár. Boðað er viðskiptabann á landtökubyggðir Ísraelsmanna í Palestínu og innflutningsbann á vörum sem eru framleiddar þar, það eru aðallega appelsínur, avókadó, döðlur, mangó, ólífuolíur, vín og vínber. Auk Norðurlandanna standa Bretland, Frakkland, Írland, Kanada, Portúgal, Pólland og Spánn að yfirlýsingunni. Löndin tólf segja í yfirlýsingunni að ástandið hafi versnað hratt vegna fordæmalauss ofbeldis af hálfu landtökumanna og stækkunar landtökubyggða. Þarna vekur athygli að Þjóðverjar eru ekki með en stefna þeirra gagnvart Ísrael hefur ætíð verið afar varkár vegna sögulegra ástæðna. Það virðist sem Bretar, Frakkar og Kanadamenn hafi haft forgöngu um refsiaðgerðirnar.
Stefnubreyting Breta fær mesta athygli Þátttaka í refsiaðgerðum er nokkuð róttæk stefnubreyting bresku stjórnarinnar gagnvart Ísrael. Hingað til hafa Bretar ekki mótmælt landnámi Ísraelsmanna á herteknu svæðunum. Í ræðu sinni í breska þinginu þegar tilkynnt var um aðgerðirnar sakaði Ed Miliband, utanríkisráðherra Breta, terrorista í hópi landtökufólksins um þjóðernishreinsanir. Hann sagði að refsiaðgerðunum væri ekki beint gegn ísraelsku þjóðinni, samband Breta við hana væri órjúfanlegt. Bretar gætu hins vegar ekki sætt sig við framferði Ísraelsstjórnar. Það sem vekti fyrir bresku stjórninni væri að bjarga tveggja ríkja lausninni sem væri eina raunhæfa leiðin til friðar og öryggis fyrir bæði Ísraelsmenn og Palestínumenn. Andstaða við landrán er ekki gyðingahatur Ed Miliband sagðist hafa skýlaus skilaboð til Breta og annarra þjóða; ef fólk gerði breska gyðinga ábyrga fyrir aðgerðum Ísraelsstjórnar væri…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗