Raunverulegt Truman Show? 149 tóku þátt í að blekkja Rasmus
What the source reports
Hvað myndir þú gera ef þú kæmist að því að það væri búið að vera að plata þig í falinni myndavél í marga mánuði? Danski grínistinn Rasmus Wallbridge veit það því hann komst nýverið að því að vinir hans, kunningjar og þjóðþekktir Danir höfðu blekkt hann í fjóra mánuði til að búa til sjónvarpsþætti sem heita á dönsku Alle elsker Rasmus eða Allir elska Rasmus. Þar er honum talin trú um að stóri draumurinn hans um að búa til kvikmynd sé að rætast. TV2 tók þættina upp með földum myndavélum en sögðust einnig vera að gera heimildarþætti um gerð kvikmyndarinnar, sem átti að vera eins konar dönsk Scary Movie.
Hluti þáttanna er því tekinn upp með vitneskju Wallbridge, en ekki í þeim tilgangi sem hann heldur og svipar því að einhverju leyti til bandarísku þáttanna Jury Duty, þar sem einn maður telur sig sitja í raunverulegum kviðdómi, í máli sem verið sé að gera heimildarþætti um, þegar raunin er að allir nema hann eru leikarar. Hér að neðan má sjá sýnishorn úr þáttunum: 149 tóku þátt í blekkingunni Í þáttunum lendir hann í alls kyns hremmingum og furðulegum atvikum í tengslum við gerð kvikmyndarinnar sem hann heldur að séu raunverulegir atburðir en það er allt plat. Meðal þátttakenda eru Casper Christensen, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Klovn, og Malte Ebert, sem er þekktastur sem söngvarinn Guldreng, eða Gulldrengurinn. Alls tóku 149 manns þátt í að blekkja Wallbridge en það er besti vinur hans, þáttastjórnandinn og grínistinn Martin Johannes Larsen, sem er eins konar höfuðpaur á bak við grínið. „Allir leggja Rasmus í einelti“ En það finnst ekki öllum grínið fyndið. Larsen og sjónvarpsstöðin TV2, sem framleiðir og sýnir þættina, hafa hlotið mikla gagnrýni eftir frumsýningu þeirra. Mörgum finnst grínið ganga of langt og jafnvel vera siðlaust – eða allavega á siðferðislega…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗