Primetime: Krufning á vatnaskilum í bandarískri sjónvarpsmenningu
What the source reports
Kolbeinn Rastrick skrifar: Primetime er fyrsta leikna kvikmynd leikstjórans Lance Oppenheim í fullri lengd. Hann hefur áður sent frá sér heimildarmyndir eins og Some Kind of Heaven og Spermworld og heimildaþættina Ren Faire. Heimildarmyndinni You Can See Everything sem er nýlent í kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum leikstýrði Oppenheim einnig, með Nathan Fielder. Oppenheim er bersýnilega hrifinn af raunveruleikanum og því ekki skrítið að hann sæki efniviðinn í fyrstu leiknu kvikmynd sína þangað. Handritið skrifaði Ajon Singh árið 2023 og byggði það á blaðagrein Lukes Dittrich, „Tonight on Dateline This Man Will Die“ sem birtist í Esquire árið 2009. Oppenheim fékk það í hendurnar frá Robert Pattinson, sem leikur aðalhlutverkið í Primetime en hann hafði rekist á það þegar hann var að leita að handriti til að framleiða.
Oppenheim segist hafa verið mjög hrifinn af handritinu þar sem það fjallaði um hugmyndina um Chris Hansen, aðalpersónu myndarinnar, í stað þess að vera hefðbundin ævisaga. Primetime gerist á árunum 2004-2007 og fjallar um umdeilda og geysivinsæla raunveruleikasjónvarpsþætti, To Catch a Predator, sem sjónvarps- og blaðamaðurinn Chris Hansen stýrði á þessum árum. Þættirnir snerust um að lokka fullorðna menn í hús þar sem þeir héldu að þeir væru að hitta einstaklinga undir lögaldri. Teymi á vegum sjálfboðaliðasamtakanna Perverted Justice var þá búið að leggja agn fyrir mennina á spjallsíðum á netinu. Þegar mennirnir mættu á staðinn tók leikari eða leikkona á móti þeim sem búið var að klæða og farða svo þau virtust yngri. Þegar mennirnir voru komnir inn fyrir brugðu leikarinn eða leikkonan sér frá og Chris Hansen gekk inn með útprentuð eintök af samskiptunum sem mennirnir höfðu átt við „barnið“ á spjallsíðunum. Hansen bauð þeim iðulega sæti og spurðist þá hvort…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗