Pólitíkin þvælist fyrir í samgöngumálum
What the source reports
Uppbygging samgönguinnviða og breyting á ferðavenjum er langhlaup og margt spilar inn í það hvort fólk getur telur sig geta notað aðra ferðamáta en einkabíl. Þó að pólitíkin sé nauðsynleg, þar þurfi að taka ákvarðanirnar, þá þvælist hún á köflum töluvert fyrir í uppbyggingu. Þetta segir Lilja Guðríður Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur og framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu. Rætt var við Lilju á Morgunvaktinni í morgun um nýlegar kannanir á ferðavenjum og virka ferðamáta, og um samgönguinnviði á höfuðborgarsvæðinu. „Við erum með sex sveitarfélög hérna og það er ekkert launungarmál að mér finnst það galið sem samgönguverkfræðingi að þurfa að fara með verkefni fyrir sex skipulagsráð, sex bæjarstjóra. Þetta tekur alveg óheyrilega langan tíma, pólitíska ferlið í þessu.
“ Hún starfaði í Danmörku um sjö ára skeið og segir breytingar sem hafi tekið mánuð í ferli í stærri borgum þar geta tekið upp undir hálft ár hér á landi. „Það sem manni sárnar kannski sem sérfræðingi er að sjá þegar hlutir tengdir samgöngum, eitthvað sem skiptir litlu máli, er notað í pólitískar keilur í kosningabaráttu og annað. “ Umræða um samgönguinnviði er oft skökk, segir Lilja G. Karlsdóttir samgönguverkfræðingur. Það sé tabú að ræða um lest til Keflavíkur en Sundabraut eigi að leysa allan vanda, þó að miklu fleiri séu á fyrrnefnda svæðinu. Í rannsókn sem Háskóli Íslands framkvæmdi og var kynnt í september hjá Reykjavíkurborg kom fram að þriðjungur Reykvíkinga sem nota einkabíl til og frá vinnu væri til í að nota frekar aðra samgöngumáta. Stærsta hindrunin sem var nefnd var að það tæki of langan tíma. Lilja segir rannsóknir sýna það endurtekið að fólk hafi ekki áhuga á að nota meira en 30 mínútur af tíma sínum í að ferðast til vinnu og annað eins til baka. Rannsóknir hennar í mörgum landshlutum hér á…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗