ÖSE verður ekki með kosningaeftirlit í Bandaríkjunum
What the source reports
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, verður ekki boðið að fylgjast með þingkosningum í Bandaríkjunum í nóvember næstkomandi. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu á vefsíðu stofnunarinnar sem birt var í dag. Öll ríki Evrópu eiga aðild að ÖSE auk Bandaríkjanna, Kanada, Kasakstan, Kirgistan, Tadsjikistan, Túrkmenistan og Úsbekistan.
Aðildarríkin hafa skuldbundið sig til að bjóða eftirlitsmönnum frá öðrum aðildarríkjum og viðeigandi einkastofnunum og samtökum til kosningaeftirlits. Þetta verður í fyrsta sinn síðan 2002 sem ÖSE verður ekki með kosningaeftirlit í Bandaríkjunum. Frá árinu 2002 hafa fulltrúar ÖSE verið með kosningaeftirlit í 12 kosningum í Bandaríkjunum, þar af 6 þingkosningum. Í tilkynningu ÖSE segir að á undanförnum tveimur áratugum hafi stofnunin byggt upp samstarf við alríkis-, ríkisíkis- og sveitastjórnaryfirvöld, kjörstjórnir, stjórnmálaflokka, almenning og aðra…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗