Ósáttur við eftirlit sem „rannsakar, ákærir og dæmir“
What the source reports
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, gagnrýnir Samkeppniseftirlitið í aðsendri grein í Morgunblaðinu og hvetur til þess að fyrirkomulag samkeppniseftirlits verði endurskoðað. Hann vill að aðskilnaður rannsóknar, málsóknar og ákvörðunar um brot verði skýrður betur. Tilefnið er rannsókn Samkeppniseftirlitsins á þátttöku Landsvirkjunar í útboði Landsnets á raforku vegna flutningstapa 2017–2021 og ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem felldi úr gildi 1,4 milljarða sekt á fyrirtækið. Hörður segir að annmarkar á rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafi ekki verið bundnir við formsatriði og vísar til þess að þeir lutu að því að markaðir hefðu ekki verið skilgreindir með fullnægjandi hætti. Auk þess hafi rannsókn á skilyrðum og mögulegum skaðlegum áhrifum verið ófullnægjandi.
Aðkoma Landsvirkjunar tortryggð Hörður segir Samkeppniseftirlitið hafa túlkað tilraunir Landsvirkjunar til að tryggja orkuöryggi og vinna samkeppnisréttaráhættugreiningu sem tilraunir til að réttlæta brot á eða sniðganga samkeppnislög. Hann segir málflutning Samkeppniseftirlitsins meðan á rannsókn stóð einnig hafa verið á þann veg að Landsvirkjun hefði líklega misnotað markaðsráðandi stöðu sína. „Við töldum ljóst þegar við rannsókn málsins að Samkeppniseftirlitið hefði farið út fyrir valdheimildir sínar. “ „Rannsakar, ákærir og dæmir“ Hörður segir Landsvirkjun hafa átt gott og faglegt samstarf við eftirlitsstjórnvöld í gegnum tíðina. „Reynslan af þessu máli gefur hins vegar tilefni til að velta fyrir sér hvort núverandi fyrirkomulag samkeppniseftirlits tryggi nægilegan aðskilnað rannsóknar, mats á ætluðu…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗