One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Öryggisgalli ógnar enn vefsíðum: Óprúttnir aðilar gætu komist yfir persónuupplýsingar

Öryggisgalli ógnar enn vefsíðum: Óprúttnir aðilar gætu komist yfir persónuupplýsingar

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 23, 2026, 6:24 PM
Öryggisgalli ógnar enn vefsíðum: Óprúttnir aðilar gætu komist yfir persónuupplýsingar
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 23, 2026, 6:24 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Öryggisgalli í PHP-forritunarmálinu ógnar enn vefsíðum víða um heim. Fagstjóri hjá CERT-IS segir ástandið enn alvarlegt en að hinn almenni borgari þurfi þó ekkert að aðhafast. Gallinn kom í ljós á miðvikudaginn og voru fjölmargar íslenskar vefsíður og kerfi berskjölduð. Alvarleiki gallans var metinn sem 9,2 af skalanum 10. Bjarki Þór Sigvarðsson, fagstjóri CERT-IS, segir ógnina ekki yfirstaðna og brýnt sé að þeir sem reki vefsíður séu áfram á tánum. Einhverjir hafi haft samband við CERT-IS en þeim sem reki vefsíður hafi verið bent á að fylgja leiðbeiningum hjá þeim sem halda úti PHP. Ógnin sé ekki yfirstaðin fyrr en allir hafi uppfært kerfi sín.

„Það var eitthvað tekið eftir því einmitt að íslenskir vefir voru teknir niður annaðhvort til að bíða eftir uppfærslunni eða til að uppfæra eftir að uppfærslan kom út og það voru bara góð og rétt viðbrögð“ Óprúttnir aðilar gætu komist í persónuupplýsingar Spurður hvort almenningur þurfi að aðhafast eitthvað svarar Bjarki neitandi. En er þetta samt galli sem getur orðið til þess að einhverjir óprúttnir aðilar komist yfir persónuupplýsingar eða einhvers konar gögn um einstaklinga? „Já. Því miður er þessi galli þannig að hann gæti gert ógnaraðilum það kleift ef þeir kæmust inn á vef og gætu þá brotist áfram innar í kerfi þess sem tengist vefnum. Þá gætu upplýsingar þar…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS