One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Öruggt hjá Grindavík og Val

Öruggt hjá Grindavík og Val

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 28, 2026, 9:14 PM
Öruggt hjá Grindavík og Val
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 28, 2026, 9:14 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Grindavík vann sinn fimmta sigur í jafnmörgum leikjum þegar liðið lagði Fjölni, 99-70, í Grafarvogi. Grindvíkingar höfðu sjö stiga forskot í hálfleik, 52-45, en gerðu endanlega út um leikinn í þriðja leikhluta. Þá skoruðu gestirnir 18 stig gegn aðeins fjórum stigum Fjölnis og náðu 21 stigs forskoti fyrir lokaleikhlutann. Abby Claire Beeman var stigahæst Grindvíkinga með 23 stig, tíu fráköst og níu stoðsendingar og var því aðeins einni stoðsendingu frá þrefaldri tvennu. Ellen Nystrom og Farhiya Abdi skoruðu 16 stig hvor.

Arna Rún Eyþórsdóttir var stigahæst Fjölnis með 20 stig og Aðalheiður María Davíðsdóttir bætti við 18 stigum. Fjölnir hefur tapað öllum fimm leikjum sínum í deildinni til þessa. Valur hafði betur á Sauðárkróki Valur vann sannfærandi 27 stiga sigur á Tindastóli á Sauðárkróki, 72-45. Valskonur leiddu 34-22 í hálfleik en gerðu út um leikinn með frábærri vörn í þriðja leikhluta. Tindastóll skoraði þá aðeins sex stig gegn 20 stigum Vals og munurinn var orðinn 26 stig fyrir síðasta fjórðunginn. Reshawna Rosie Stone var stigahæst Vals með 14 stig og Dzana Crnac skoraði 13 stig. Alyssa…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS