One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Óeining um „aukaaðild“ Kanada að Evrópusambandinu

Óeining um „aukaaðild“ Kanada að Evrópusambandinu

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 28, 2026, 7:00 AM
Óeining um „aukaaðild“ Kanada að Evrópusambandinu
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 28, 2026, 7:00 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Það vakti athygli í síðasta mánuði þegar Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins talaði um að Kanada gæti fengið „aukaaðild“ að Evrópusambandinu (e. associate membership); nokkuð sem fáir áttuðu sig á hvað þýddi. Eftir stefnuræðu Von der Leyen, þar sem hún notaði þetta hugtak, hefur komið í ljós að ríkisstjórnir aðildarríkja ESB virðast ekki verið hafðar með í ráðum, áður en hún lagði þetta til. „Það er enn verið að ræða þetta,“ sagði háttsettur embættismaður ráðherraráðsins við fréttamenn hér í Brussel í gær, þegar hann og fleiri embættismenn fjölluðu óformlega um leiðtogafund Evrópusambandsins og Kanada, sem haldinn verður í Montréal á morgun og föstudag. Á þessum óformlega blaðamannafundi í gær var lögð áhersla á mikilvægi þessa leiðtogafundar og þau skref sem til stendur að taka til að breikka og dýpka samstarf Evrópusambandsins og Kanada.

Breytingar á sameiginlegri yfirlýsingu En þótt öll 27 aðildarríki Evrópusambandsins séu einhuga um að styrkja samstarfið við Kanada, ekki síst á sviði orkumála og varnar- og öryggismála, þá eru skiptar skoðanir um merkimiðann á þessu sambandi - og það kemur berlega í ljós í drögum að sameiginlegri yfirlýsingu leiðtogafundarins, sem nú er verið að berja saman, bæði hér í Brussel og í Ottawa. Í drögunum sem voru í vinnslu í upphafi vikunnar - og fréttastofa hefur undir höndum - er búið að strika yfir kaflaheitið "Associate membership", og inni í textanum sjálfum er búið að bæta við þeim fyrirvara að þetta sé hugtak sem framkvæmdastjórnin hafi sett fram. Í frétt Politico um þetta mál er fullyrt að Þýskaland og minnst þrjú önnur aðildarríki séu ekki sátt við þessa orðanotkun; ekki er langt síðan Friedrich Merz Þýskalandskanslari notaði einmitt þetta sama hugtak í tillögu sem hann setti fram um að Úkraína…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS