One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Nútímaleg, alvöruþrungin og tilfinningarík plata

Nútímaleg, alvöruþrungin og tilfinningarík plata

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 30, 2026, 10:28 PM
Nútímaleg, alvöruþrungin og tilfinningarík plata
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 30, 2026, 10:28 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Árni Matthíasson skrifar: Krummi Björgvinsson er ættaður úr rokki af hörðustu og grimmustu gerð, en í sólóferli sínum hefur hann þróast í aðra átt, þó enn eimi eftir af rokkinu í textum og raddbeitingu og votti fyrir henni í tónlistinni. Hann hefur spreytt sig á ýmsu síðustu árir, enda leikur flest í höndum hans, hvort sem það er myrk hljómborðskeyrsla í Legend, sem hann vann með Halldóri Ágústi Björnssyni, eða blússkotið kántrí í Esju, þar sem hann vann með Daníel Ágúst Haraldssyni. Á nýútkominni sólóskífu, Scavenger of Hope, er bandarískt útlagakántrí ráðandi, nútímalegt skuggaskotið ameríkana með sterkum persónulegum textum. Lög og textar á Scavenger of Hope eru eftir Krumma, hann leikur á gítara og slagverk og annast útsetningar og upptökustjórn með aðstoð Friðjóns Jónssonar Hljóðritameistara.

Ýmsir leggja Krumma og lið á skífunni, til að mynda á Bjarni Sigurðsson, Mínusfélagi Krumma, marga góða spretti, Þorleifur Gaukur Davíðsson spilar framúrskarandi vel á fetilgítar og munnhörpu, ekki síst í laginu Bird of Passage, Birgir Ísleifur Gunnarssson leggur til smekklegt hljómborðsspil þegar við á og Erik Qvikt er traustur á trommunum. Óttar Sæmundsson spilar líka einkar vel á bassann og víða framúrskarandi vel. Alex Roth leggur til lipurt mandólín. Krummi hefur verið að tína út lög af plötunni út árið, þrjár smáskífur eru komnar út af henni og nú síðast Bak við fjöllin, eina lagið á plötunni sem er með íslenskum texta, en Krummi tók það upp að nýju með íslenskum texta og breyttri útsetningu þegar Björgvin Halldórsson faðir hans féll skyndilega frá í vor. Textinn er þrunginn eftirsjá og sorg en líka af von og þakklæti. Mjörk sterkt og áhrifamikið lag í einfaldleika sínum. Það er myrkur víða í lögum plötunnar, skuggar á sveimi, ógnir og ótti, tár og tregi. Í textum og…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS