One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Novo (Nordisk) á krossgötum: Úr ævintýralegum vexti í 50% hrun á verðmæti

Novo (Nordisk) á krossgötum: Úr ævintýralegum vexti í 50% hrun á verðmæti

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 1, 2026, 9:12 AM
Novo (Nordisk) á krossgötum: Úr ævintýralegum vexti í 50% hrun á verðmæti
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 1, 2026, 9:12 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Danski lyfjarisinn Novo, sem hafði þá nýverið breytt nafninu sínu úr Novo Nordisk, hélt markaðsdag 21. september. Forsvarsmenn fyrirtækisins sögðust hlakka til að kynna framtíðaráform sín og vera sannfærðir um að framtíðin væri björt. Ekki væri samt nóg að starfsmennirnir væru einhuga, það þyrfti líka að sannfæra alla hina. „Þetta byrjar með smá sögu, þar sem við segjum hvert við ætlum að fara, hvernig við ætlum að komast þangað og, það sem meira máli skiptir, hvernig ætlið þið að veita okkur aðhald á þeirri leið,“ sagði Mike Doustdar forstjóri fyrirtækisins. Fyrir áhugasama er sex tíma upptaka frá þessum degi á Youtube. Styttri útgáfa af því fylgir hér síðar. En aðeins að sögu fyrirtækisins. Daninn August Krogh fékk Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði árið 1920. Ári seinna var honum boðið til Bandaríkjanna að halda fyrirlestur um störf sín. Þá var nýfarið að nota insúlín í meðferð við sykursýki.

Það vakti áhuga Augusts og eiginkonu hans Marie, sem var með sykursýki. Þegar þau komu heim til Danmerkur fengu þau leyfi til að framleiða insúlín fyrir Danmerkurmarkað og var fyrirtækið Nordisk Insulinlaboratorium stofnað árið 1923. Krogh réð tvo bræður til að koma upp framleiðslunni en þeir hættu síðar hjá fyrirtækinu og hófu sjálfir að framleiða insúlín í vökvaformi. Utan um það var stofnað fyrirtækið Novo Therapeutisk Laboratorium árið 1925. Fyrirtækin voru alltaf í nánu samstarfi um rannsóknir og framleiðslu og sameinuðust loks 1989. Þá hétu þessi fyrirtæki Nordisk Gentofte og Novo Industri, en urðu Novo Nordisk við sameininguna. Tímamót urðu þegar insúlínframleiðsla fyrirtækjanna tveggja komst inn á Bandaríkjamarkað um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Eftir sameininguna varð til stærsti insúlínframleiðandi í heimi en á þeim tíma buðu þeir einnig lyf til að nota í meðferð…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS