Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
What the source reports
Saksóknari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem rannsakar árás flugmanns á flugstjóra FlyDubai segir að hann hafa ráðist að honum með öxi og hann hafi ætlar sér að fremja hryðjuverk. Fólk öskraði af hræðslu um borð enda voru farþegar vissir um að flugvélin myndi hrapa. Flughæð hennar hafði lækkaði um meira en helming þegar farþegar náðu að yfirbuga flugmanninn. Nafn flugmannsins, sem er frá Óman, hefur ekki verið staðfest opinberlega en ónafngreindir heimildarmenn hafa sagt erlendum miðlum að hann heiti Hamam al-Hamami.
Hamad Saif Al Shamsi, ríkissaksóknari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, greindi frá því í dag að rannsókn á atvikinu hefði leitt í ljós að hann hefði ætlað sér að fremja hryðjuverk. Þá hafi hann ráðist á flugmanninn með neyðaröxi, sem er skyldubúnaður í flugvélum og ætluð til dæmis til þess að brjóta glugga í neyðartilvikum. Al Shamsi segir rannsóknina nú miða aðallega að því að varpa ljósi á aðdragandann og möguleg tengsl al-Hamami við öfgahópa. Segja honum hafi verið bannað að fljúga í Óman Annað sem ekki hefur verið staðfest en greint frá í erlendum miðlum er að al-Hamami hafi verið bannað að fljúga í Óman vegna öfgafullra skoðana. Vélin var á leið frá Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum til Tel Avív í Ísrael og nær allir farþegar sem voru…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗