One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Mynd sem er „fyndin og skemmtileg, falleg og einlæg, blóðug og subbuleg“

Mynd sem er „fyndin og skemmtileg, falleg og einlæg, blóðug og subbuleg“

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 3, 2026, 12:30 PM
Mynd sem er „fyndin og skemmtileg, falleg og einlæg, blóðug og subbuleg“
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 3, 2026, 12:30 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Gunnar Theodór Eggertsson skrifar: Teenage Sex and Death at Camp Miasma / Dráp og dónaskapur í Camp Miasma Jane Schoenbrun skrifar og leikstýrir. Hanna Einbinder og Gillian Anderson í aðalhlutverkum. Mynd sem ég hef beðið með óþreyju eftir að sjá og var mjög glaður að finna á dagskránni á RIFF þetta árið. Mjög skemmtileg og tilraunakennd mynd sem er í senn satíra á kvikmyndabransann, óður til hryllingsmynda (sérstaklega lélegra hryllingsmynda), og einlæg og falleg ástarsaga. Myndin hlaut hinsegin pálmann á Cannes-hátíðinni. Leikstjórinn Jane Schoenbrun er mikill aðdáandi hryllingsmynda og sér í lagi hnífsstungumynda (slasher-mynda) en sú kvikmyndategund hefur alltaf verið flókin varðandi kynjapólitík, enda hryllingsmyndageirinn þekktur fyrir staðalímyndir og kynjahlutverk sem eru afar formföst og gamaldags.

Schoenbrun, sem er trans kona, segist sjálf vilja leika sér að reglunum í hryllingi og gera þær meira hinsegin og líka halda í líkamlegu tengslin á milli hryllings og kynlífs sem hafa verið hluti af þessum myndum frá upphafi. Ég hef ekki séð fyrri myndirnar hennar en ætla að drífa mig að sjá þær, því ég var virkilega hrifinn af Camp Miasma. Fyrir þau okkar sem erum aðdáendur hnífsstungumynda er myndin stútfull af tilvísunum í hefðina og augljóst hvað Schoenbrun þekkir geirann afturábak og áfram, en ég held að þau sem ekki þekkja sérstaklega vel til hafi samt ekki síður gaman af – við þurfum ekki að hafa séð allar Friday the 13th-myndirnar eða Sleepaway Camp til að skilja Camp Miasma, við þekkjum flest allar þessar klisjur, þær eru löngu orðnar hluti af kvikmyndavitund okkar. Hanna Einbinder leikur Kris, unga hinsegin kvikmyndagerðarkonu sem hefur fengið tækifæri hjá stóru Hollywood-stúdíói til að blása nýju lífi í gamla hryllingsmyndaseríu sem heitir Camp Miasma og…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS