One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Munaði mjóu að rúta lenti í grjóthruni undir Eyjafjöllum

Munaði mjóu að rúta lenti í grjóthruni undir Eyjafjöllum

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 4, 2026, 1:57 PM
Munaði mjóu að rúta lenti í grjóthruni undir Eyjafjöllum
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 4, 2026, 1:57 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Grjót hrundi úr Holtsnúpi undir Eyjafjöllum og yfir þjóðveginn í morgun. Nýuppsettar hrunvarnir gripu mestan hluta þess en stór hnullungur rauf þær og þveraði veginn. Einar Viðar Viðarsson, verktaki og íbúi á Ásólfsskála, gerir ráð fyrir að bjargið hafi verið um 10 tonn. „Og endaði 15-20 metrum sunnan við veginn,“ segir hann. Einar kom að staðnum nokkrum mínútum eftir grjóthrunið. Hann segir að fyrsti bíllinn á staðinn eftir atburðinn hafi verið rúta með á bilinu 40 til 50 manns innanborðs. „Ef rútan hefði verið einhverjum tugum sekúndna á undan en hún var hefðu sirka tíu getað verið dánir. Þetta er 10 tonna bjarg sem fer.

“ Hann segir bílstjóra rútunnar hafa verið nokkuð skekinn. Kona lést þegar grjót hrundi á bíl sem hún ók á þjóðveginum við Holtsnúp í Steinafjalli í mars 2025. Í sumar var varnargörðum komið fyrir á 300 metra kafla við þjóðveginn. Íbúar hafa kallað eftir því að vegurinn verði færður lengra frá fjallinu. „Þetta stoppar ekki þau björg sem geta komið úr fjallinu og þetta verndar ekki neinn fyrr en vegurinn er færður frá hlíðinni,“ segir Einar. Grjóthrunið varð rétt upp úr klukkan 11 í morgun. Einar segir að umferðin um veginn sé mjög þung upp úr klukkan 10 þar sem fjöldi ferðamanna keyri austur frá Reykjavík. Hann bendir enn fremur á að lokist vegurinn vegna grjóthruns sé engin hjáleið til staðar fyrir viðbragðsaðila.…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS