One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Morð á 18. öld verður að óperu

Morð á 18. öld verður að óperu

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 4, 2026, 4:15 PM
Morð á 18. öld verður að óperu
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 4, 2026, 4:15 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Adrienne Lecouvreur fæddist árið 1692 og var ein frægasta leikkonan hjá Comédie francaise í París á fyrri hluta 18. aldar. Hún var aðeins 38 ára gömul þegar hún dó árið 1730 og töldu margir að henni hefði verið byrlað eitur af furstynjunni af Bouillon sem var keppinautur hennar um ástir Maurice af Saxlandi. Um þessa atburði er fjallað í óperunni „Adriana Lecouvreur“ eftir Francesco Cilea sem frumsýnd var árið 1902. Arturo Colautti samdi textann upp úr samnefndu leikriti eftir Eugène Scribe. Á Óperukvöldi útvarpsins verður flutt hljóðritun frá sýningu Ríkisóperunnar í Vín á óperunni, 5. sept. sl. Baksviðs í leikhúsinu Fyrsti þáttur gerist baksviðs í leikhúsinu Comédie française. Það er stutt í að tjaldið verði dregið frá og allt er á suðupunkti, sviðsstjórinn Michonnet reynir að hafa stjórn á hlutunum.

Verið er að leika leikrit eftir Corneille og báðar helstu leikkonur Comédie francaise taka þátt í því: Adriana Lecouvreur og ungfrú Duclos. Furstinn af Bouillon, sem er elskhugi ungfrú Duclos, kemur nú ásamt vini sínum séra Chazeuil, og hrósar leikurunum tilgerðarlega. Adriana kemur og er í miðju kafi að æfa sig. Furstinn og séra Chazeuil hrósa henni, en hún syngur aríuna „Io son l´umile ancella“ – „Ég er auðmjúk ambátt“ þar sem hún segist aðeins vera ambátt listarinnar. Þegar Adriana og Michonnet eru ein eftir baksviðs reynir Michonnet að biðja hennar, hann hefur lengi elskað hana úr fjarlægð og nú hefur honum tæmst arfur sem gerir honum kleift að gifta sig. En áður en hann getur stunið upp bónorðinu segir Adriana honum frá því að hún elski foringja í þjónustu greifans af Saxlandi og hann ætli að koma í leikhúsið þetta kvöld. Og í þeim töluðum orðum kemur maðurinn sem hún er að tala um, Maurizio. Í rauninni er hann sjálfur greifinn þótt hann þykist vera lægra settur. Þau…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS