One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum

Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 3, 2026, 1:05 PM
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 3, 2026, 1:05 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Skipulögð mótmæli fara fram í meira en 50 borgum og bæjum á Spáni í dag. Mótmælin snúa að húsnæðismálum, ekki síst leigumarkaðnum. Mótmælin hófust eftir að Maricarmen, 87 ára gömul kona, var borin út úr húsnæði sem hún hafði leigt áratugum saman í Madríd. Leigjendasamtök Spánar segja að það hafi myndast gjá sem ekki verði brúuð milli fólksins og flokkanna á þingi. Tillögurnar sem Pedro Sánchez forsætisráðherra mælti fyrir í gær fela meðal annars í sér að leigusamningar myndu endurnýjast sjálfkrafa og sérstaka ráðstöfun til að koma í veg fyrir útburð leigjenda í viðkvæmri stöðu.

Þá átti líka að banna útburð til ársins 2030 og setja reglur um tímabundna leigu og leigu á herbergjum. Flokkur aðskilnaðarsinna í Katalóníu, sem ver ríkisstjórnina vantrausti, var á móti tillögunum en með andstöðu hans og hægri flokkanna í stjórnarandstöðu voru tillögurnar felldar naumlega. Strax hefur verið þrýst á Sanchez að boða til kosninga. Samkvæmt lögum á að boða til þingkosninga eigi síðar en í ágúst á næsta ári. Spænska dagblaðið El País hefur eftir heimildum að Sanchez sé að íhuga að boða til kosninga. Einnig hefur verið hvíslað um að hann hafi í einhvern tíma verið að bíða eftir rétta augnablikinu. Sannleiksstundin runnin upp Atkvæðagreiðslan á þinginu í gær var…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS