Mörkunum rigndi þegar Breiðablik lyfti skildinum
What the source reports
Breiðablik tók á móti FH í lokaleik liðanna í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Þegar var ljóst að Blikar væru Íslandsmeistarar og FH endaði í öðru sæti en það skorti þó ekkert upp á fjör í leikinn. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var í ótrúlegum ham og hún opnaði markareikning sinn á 12. mínútu þegar hún fékk stoðsendingu frá Þórdísi Elvu Ágústsdóttur. Hún tvöfaldaði svo forystuna á 18. mínútu og þriðja mark hennar kom á 37. mínútu. Enn var nóg inni hjá Hrafnhildi Ásu sem skellti í sitt fjórða mark á 42. mínútu, 4-0. Þessu svaraði FH með marki frá Hrönn Halldórsdóttur, 4-1. Hrafnhildur Ása bætti enn í þegar hún kom Blikum í 5-1 á 57. mínútu. Hafrún Birna Helgadóttir skoraði sárabótarmark fyrir FH á 87. mínútu og 6-2 reyndust lokatölur og Íslandsmeistararnir í Breiðabliki fögnuðu sigri. Þetta er í 21. sinn sem Breiðablik er Íslandsmeistari og nú fagnar liðið titlinum þriðja árið í röð.
Elísa kveður eftir „eitt stórt ævintýri“ Elísa Viðarsdóttir hefur nú spilað sinn síðasta fótboltaleik en hún hefur leikið með meistaraflokki í tæp 20 ár. Hún vann fjóra Íslandsmeistaratitla með Val og nú einn með Blikum. Hún skipti yfir í Breiðablik eftir tæplega tíu ár hjá Val. „Það eru ótrúlegar tilfinningar sem flæða um líkamann og fallegt að fá að enda þetta svona,“ segir Elísa við leikslok. Hún segir ákvörðunina um að hætta hafa átt aðdraganda. „Það er alltaf erfitt að segja þetta upphátt. Maður er alveg búinn að hugsa þetta í þaula. Það er erfitt að skilja við eitthvað sem maður hefur gert alla ævi en það er eitthvað nýtt og spennandi sem tekur við. “ Breiðablik og FH áttust við í lokaleik liðanna í Bestu deild kvenna í fótbolta. Breiðablik var þegar búið að tryggja titilinn en leikurinn var engu að síður mjög fjörugur. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði heil fimm mörk í 6-2…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗