One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Missti röddina í nokkra daga í miðri lestrartörn: Rosalega löng og „suddaskemmtileg“ bók

Missti röddina í nokkra daga í miðri lestrartörn: Rosalega löng og „suddaskemmtileg“ bók

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 31, 2026, 7:00 AM
Missti röddina í nokkra daga í miðri lestrartörn: Rosalega löng og „suddaskemmtileg“ bók
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 31, 2026, 7:00 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Karamazov-bræðurnir er stór bók um stórar spurningar, stórbrotin saga sem er eitt af stórvirkjum heimsbókmenntanna. Bókin er eftir Fjodor Dostojevskí og kom upphaflega út árið 1880. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina úr rússnesku á sínum tíma og nú hefur Illugi Jökulsson lesið bókina inn sem kvöldsögu Ríkisútvarpsins. Það var talsvert verk að lesa þennan doðrant upphátt, líkt og Illugi sagði frá í viðtali við Lestina. Fyrsti lestur kvöldsögunnar Karamazov-bræðurnir var fluttur á Rás 1 á mánudag. „Það komu dagar þar sem ég las í sjö tíma samfleytt,“ segir Illugi Jökulsson sem las í kappi við tímann. Allir lestrarnir eru komnir í spilarann. „Þetta er rosalega löng bók. Þetta reyndust vera 1. 200 blaðsíður sem ég las og lestrarnir eru 107. Þannig að þetta endist eitthvað sem kvöldsaga.

Ég held að þetta hljóti að endast eitthvað fram á næsta ár,“ segir Illugi sem lét prenta bókina út á laus blöð til þess að hafa stærra letur. Sem ungur maður las Illugi talsvert af bókum Dostojevskís, þar á meðal þessa í enskri þýðingu Davids Magarshacks. „Ég hélt satt að segja að þetta væri ekki bók sem maður þyrfti endilega að lesa aftur. Svo var ég beðinn að gera þetta og las hana og þetta er bara suddaskemmtileg bók,“ segir Illugi. Hann hafði eitthvað blaðað í þýðingu Ingibjargar á Karamazov-bræðrunum en ekki lesið hana alla. „Þýðing Ingibjargar er bráðfín, ég get eiginlega ekki hælt henni nóg. Ég reiknaði það út að þetta væru líklega um það bil 25 þúsund setningar í bókinni og ég rakst aldrei á setningu sem mér fannst eitthvað klúðurslega orðuð eða sem var erfitt að bera sér í munn eða neitt svoleiðis. Þannig að það auðveldaði náttúrulega verkið mjög hvað þetta er góð þýðing og svo er þetta bara miklu skemmtilegri bók en ég hélt. “ Eins og búast má við í skrifum Dostojevskís er bókin…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS