Mikill áhugi á Vaðölduveri og 400 störf við Hvammsvirkjun
What the source reports
Þá eru framkvæmdir við Hvammsvirkjun hafnar en um 400 manns munu fá vinnu við virkjunina. Eins og kunnugt er þá voru fyrstu vindmyllurnar fluttar í Vaðölduver og settar upp þar í sumar og voru fyrstu vindmyllurnar formlega gangsettar 15. september síðastliðinn. Alls verður um að ræða 28 vindmyllur en afl hverrar vindmyllu er fjögur til fimm megavött og hámarkshæð hverrar vindmyllu er 150 metrar. Uppsett afl í Vaðöldu er 120 megavött en Vaðölduver er fyrsta vindorkuver landsins. Stöðugur straumur fólks er á staðinn þar sem áhugasamt fólk fer á útsýnispallinn við vindmyllurnar til að sjá þær við störf.
Gunnar Aron Ólason er upplýsingafulltrúi nýframkvæmda hjá Landsvirkjun. Hann segir mikið af ferðafólki koma til að skoða vindmyllurnar. „Já, mjög mikið en mig langar að benda á útsýnissvæðið, sem er þarna rétt sunnan Sprengisandsleiðar. Það er mjög vinsælt að koma þangað og virða vindorkuverið fyrir sér. Það er mjög mikill spenningur og ásókn á þetta svæði,” segir Gunnar Aron. Og svo heilmikið næsta vor og næsta sumar, þá á að flytja restina af vindmyllunum, er það ekki? „Jú, það mun byrja um miðjan maí og þá verður restin af vindmyllunum fluttar, fjórtán talsins og það mun taka í kringum átta vikur að talið er. ” Gunnar segir að Landsvirkjun sé núna á fullum krafti að undirbúa byggingu Hvammsvirkjunar…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗