One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Meirihluti blóðmera sýndi sterk merki um ótta, kvíða og streitu meðan á blóðtöku stóð

Meirihluti blóðmera sýndi sterk merki um ótta, kvíða og streitu meðan á blóðtöku stóð

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 3, 2026, 2:36 PM
Meirihluti blóðmera sýndi sterk merki um ótta, kvíða og streitu meðan á blóðtöku stóð
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 3, 2026, 2:36 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Ný vísindarannsókn frá University of Bologna vekur spurningar um forsendur leyfis fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum hér á landi. Dýraverndarsamtök segja niðurstöðurnar sýna að endurskoða þurfi leyfi fyrirtækisins Ísteka. Matvælastofnun hefur sagt að leyfið verði tekið til endurmats ef ný vísindaleg gögn koma fram. Rannsóknin var birt í vísindaritinu Veterinary Sciences og byggir á greiningu myndskeiða sem tekin voru á sex blóðmerabúum á Íslandi 2024. Þar var hegðun hryssna og meðferð þeirra metin á meðan á blóðtöku stóð. Sterk merki um ótta, kvíða og streitu Samkvæmt rannsókninni sýndi meirihluti hryssnanna sterk merki um ótta, kvíða og streitu meðan á blóðtöku stóð.

Þá komust höfundar að þeirri niðurstöðu að aðgerðir hefðu ekki verið stöðvaðar þótt hryssur sýndu alvarleg streitueinkenni. Dýraverndarsamtökin Animal Welfare Foundation og Tierschutzbund Zürich, sem stóðu að myndatökunum, segja niðurstöðurnar stangast á við þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar þegar nýtt rekstrarleyfi var veitt. Grípa til aðgerða ef velferð er ógnað Í gögnum sem íslensk stjórnvöld sendu Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, kom meðal annars fram að gripið yrði til aðgerða ef velferð dýranna væri ógnað og að markmiðið væri að lágmarka streitu og sársauka. Rannsóknin fjallar einnig um að í mörgum tilvikum hafi ekki verið beðið nægilega lengi eftir að staðdeyfing tæki gildi…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS