One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandMannleg mistök þegar stíflueyðir og þrifaefni bönduðust saman

Mannleg mistök þegar stíflueyðir og þrifaefni bönduðust saman

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 23, 2026, 10:29 PM
Mannleg mistök þegar stíflueyðir og þrifaefni bönduðust saman
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 23, 2026, 10:29 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Komin er nokkuð skýr mynd af því hvað olli efnaleka í fiskvinnslu á Óseyri á Akureyri í dag. Klórgas myndaðist þegar stíflueyðir blandaðist við annað þrifaefni. Þetta segir Maron Berg Pétursson, varaslökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á Akureyri. Fjórir voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar eftir að hafa fundið fyrir einkennum í öndunarfærum.

Það voru mannleg mistök sem orsökuðu lekann en starfsmenn höfðu fyrr um daginn hellt stíflueyði í niðurfall í von um að losa um teppu. Þrifhópur kom svo síðdegis og ætlaði að hefja þrif en þegar þrifaefninu var hellt á gólfin kom strax í ljós að ekki var allt með felldu. Slökkviliðinu barst tilkynning um mengunina rúmlega fjögur í dag og lauk vinnu á vettvangi á áttunda tímanum í kvöld. Maron segir mildi að…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS