„Lookmaxxing“-áhrifavaldur ákærður fyrir að nauðga stúlku undir lögaldri
What the source reports
Bandaríski „looksmaxxing“-áhrifavaldurinn Braden Peters, sem kallar sig Clavicular, er ákærður fyrir að nauðga stúlku undir lögaldri, gefa henni áfengi og byrla henni ólyfjan í kynferðislegum tilgangi. Samkvæmt ákærunni áttu meint brot sér stað í maí í fyrra. Peters neitar sök. Talsmaður hans sagði við CBS News að ákærurnar væru „rugl“. Stúlkan, sem nú er 18 ára, höfðaði einkamál gegn Peters fyrr á árinu. Hún segir hann hafa gefið sér nokkra staupa af vodka og haft samræði við hana án samþykkis á heimili foreldra hans í Cape Cod í Massachusetts. Stúlkan segist hafa verið ólögráða þegar Peters, sem er tvítugur, á að hafa brotið á henni.
Hún sakar hann einnig um að hafa sprautað sig í andlitið með einhvers konar ólöglegu efni sem eigi að leysa upp fitu. Ber sig í andlitið með hamri Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Clavicular ratar í fréttir RÚV. Hann er þekktur fyrir að vera forsprakki í „looksmaxxing“-hreyfingunni og hefur hvatt fylgendur sína til að berja sig í andlitið með hamri til að bæta beinabyggingu í andliti, það sem hann kallar „bone-smashing“. Hann talar fyrir því að nota peptíða til að bæta útlit og hefur sagst nota amfetamín til að grenna sig. Megininntakið í boðskap Clavicular virðist vera að fólk verði að líta vel út til þess að ná langt í lífinu. Hann hefur safnað stórum fylgjendahópi og er til að mynda með milljón fylgjendur á Instagram og 1,2 milljónir fylgjenda á TikTok. Dauður krókódíll og slagsmál í Flórída Áhrifavaldurinn…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗