Lífskúnstner sem stundar hugleiðslu og borðar steik í morgunmat
What the source reports
Maríanna Friðjónsdóttir hefur fengist við ýmislegt í gegnum tíðina. Hún er fyrsti kvenkyns rallýökumaður landsins, rak veitingahús í Danmörku, sat á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn og vann við allar hliðar sjónvarpsframleiðslu bæði hér á landi og í Danmörku. Síðustu 15 ár hefur hún aftur á móti búið í ferðatösku og vílar ekki fyrir sér að tjalda á möl eða fjallstindum þegar hún flakkar um Evrópu í leit að ævintýrum. Hún er óhrædd við áskoranir og hefur einsett sér að læra eitthvað eitt nýtt á hverjum degi.
Hún elskar gervigreindina, borðar steik í morgunmat og hefur stúderað tilfinningalíf plantna. Líkamleg og andleg heilsa skiptir Maríönnu miklu máli og hún stundar hugleiðslu alla morgna. Þrátt fyrir að líf Maríönnu einkennist af flakki hefur hún síðustu ár haft vetrarsetu í litlu sveitaþorpi í Portúgal ásamt móður sinni, Viktoríu, sem er 93 ára. Innan um blómstrandi tré og syngjandi fugla hafa þær mæðgur notið þess að eldast saman en Maríanna segir að það séu forréttindi að fá að fylgjast með foreldrum sínum…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗