One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandLeigja út sendiherrabústaðinn fyrir rúma milljón á mánuði

Leigja út sendiherrabústaðinn fyrir rúma milljón á mánuði

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 13, 2026, 6:27 PM
Leigja út sendiherrabústaðinn fyrir rúma milljón á mánuði
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 13, 2026, 6:27 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Utanríkisráðuneytið hefur frá upphafi árs leigt út fyrrum embættisbústað íslenska sendiráðsins í Ósló. Í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu segir að írska sendiráðið í Ósló hafi haft embættisbústaðinn til leigu frá því í janúar. Það er gert vegna endurbóta sem standa yfir á þeirra embættisbústað. Leigutímabili írska sendiráðsins lýkur í lok þessa mánaðar.

Það hefur greitt 85 þúsund norskar krónur á mánuði í húsaleigu sem er rúmlega 1,1 milljón íslenskra króna. Þess má geta að sendiherra Írlands í Ósló er einnig sendiherra landsins gagnvart Íslandi. Embættisbústaðurinn sem stendur við Langviksveien á Bygdøy hefur verið á sölu frá því á fyrri hluta síðasta árs. Ásett verð er 65 milljónir norskra króna. Það samsvarar nærri 850 milljónum íslenskra króna. Frá því að eignin var sett á skrá hefur ásett verð verið lækkað um tíu milljónir norskra króna, um 130 milljónir íslenskra. Húsið hefur…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS