Leggja línur í jörð vegna áflugs á rafmagnslínur
What the source reports
Víða hefur orðið rafmagnslaust á Suðurlandi í haust vegna áflugs álfta og gæsa á rafmagnslínur. Slíkt áflug, og rafmagnsleysi vegna þess, er ekki óalgengt á þessum árstíma en þau verða þegar fuglarnir flytja sig til á vorin og haustin. Guðrún Vaka Helgadóttir upplýsingafulltrúi Rarik segir að mikið hafi unnist hjá fyrirtækinu í að fækka truflunum af þessu tagi með því að leggja línur í jörð. „Við höfum lagt áherslu á að setja í jörð línur þar sem mikið hefur verið um að fuglar fljúgi í þær,“ segir Guðrún.
Suðurlandið og kornakrar vinsælustu áfangastaðirnir Þau svæði sem verða helst fyrir truflunum vegna áflugs eru svæði nærri Höfn, Kirkjubæjarklaustri, í Vestur-Landeyjum og í Flóanum. Guðrún segir að þó að vel hafi gengið að grafa línur í jörð séu enn eftir línur sem virðast lenda í vinsælum flugleiðum fugla. „Það sama er uppi á teningnum á afmörkuðu svæði á Mýrum á Vesturlandi. Þar eru línur nærri kornökrum sem álftir og gæsir sækja í. “ Töluvert hefur fjölgað í álftastofninum hérlendis undanfarin ár, þetta segir Ólafur Einarsson, fuglafræðingur, framhaldsskólakennari og sérfræðingur í álftum. Álftir og gæsir hafa ekki einungis valdið rafmagnsleysi heldur hafa þær einnig plagað…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗