One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandKrónan frystir verð á 647 vörum: „Mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum“

Krónan frystir verð á 647 vörum: „Mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum“

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 24, 2026, 10:15 AM
Krónan frystir verð á 647 vörum: „Mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum“
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 24, 2026, 10:15 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Krónan ætlar að frysta verð á 647 vörum fram að áramótum til að bregðast við ákalli um aðgerðir til að lækka verðbólgu og draga úr kostnaði fyrir heimili landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Krónunni. Verðbólga mældist 5,6% í ágúst og Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti úr 7,75% í 8%. VR, Landssamband íslenskra verzlunarmanna og Fagfélögin sendu stórum fyrirtækjum bréf um miðjan mánuð þar sem kallað var eftir svörum um hvað þau hygðust gera til að ná niður verðbólgu og vöxtum.

Verðfrysting Krónunnar nær til vara undir vörumerkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. Í þessum flokkum eru ýmsar algengar vörur, frá matvöru til hreinlætisvara. Krónan greip til sambærilegrar aðgerðar árið 2022. „Með aðgerðinni vill Krónan leggja sitt af mörkum til að lækka verðbólgu, auka stöðugleika og draga úr kostnaðarhækkunum á heimilin,“ segir í tilkynningunni. „Verð varanna mun því ekki hækka á tímabilinu, jafnvel þótt innkaupsverð, flutningskostnaður eða aðrir kostnaðarliðir hækki. Skapist hins vegar svigrúm…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS