One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandKR náði fram hefndum gegn ÍA og upp í annað sæti

KR náði fram hefndum gegn ÍA og upp í annað sæti

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 13, 2026, 4:46 PM
KR náði fram hefndum gegn ÍA og upp í annað sæti
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 13, 2026, 4:46 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

KR vann ÍA 5-1 í Bestu deild karla í fótbolta. Leikurinn var sá fyrsti í efri hluta úrslitakeppninnar. Vesturbæingar fara upp fyrir Fram í 2. sæti og eru sex stigum á eftir toppliði Víkinga, sem eiga þó leik til góða. Alls mættu 707 áhorfendur á leikinn, sem er 3. 630 manns færri en mættu á síðasta heimaleik KR gegn Víkingum. Það er 80,52% fækkun milli leikja. Liðin mættust fyrir aðeins sjö dögum í síðasta leik hefðbundinnar deildarkeppni. Þar höfðu Skagamenn betur á Skipaskaga, 3-1. Þá unnu Stjarnan, Valur og FH í úrslitakeppni neðri hlutans. Þar með hafa Stjarnan og Valur skorið sig frá fjórum neðstu liðunum. FH sleit sig aðeins frá pakkanum fyrir neðan sig. KA og ÍBV eru enn í neðstu sætunum tveimur. Víkingur mætir Keflavík á morgun og Fram mætir Breiðabik. 3-0 yfir eftir 21 mínútu Leikurinn var afar opinn og liðin skiptust á að fá afbragðsfæri fyrstu mínúturnar.

Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós þegar Galdur Guðmundsson kláraði fyrirgjöf Orra Hrafns Kjartanssonar vel upp í þaknetið úr miðjum teignum. Markið kom á 6. mínútu. Sigurður Breki Kárason skaust upp miðjuna og bar boltann sjálfur inn á teiginn. Sigurður lagði svo boltann snyrtilega í vinstra hornið. Markið kom á 14. mínútu. Galdur skoraði þriðja markið er hann fylgdi eftir skoti Orra Hrafns. Árni í marki ÍA hafði varið vel en Galdur fylgdi eftir af harðfylgi á 21. mínútu. Skagamenn minnkuðu muninn er Jóhannes Vall fann Markús Pál Ellertsson í teignum á 69. mínútu. KR-ingar svöruðu þó fyrir sig skömmu síðar. Aron Sigurðarson sendi boltann fyrir á Luke Rae sem skallaði boltann á Eið Gauta Sigurbjörnsson. Eiður tók snertingu og hamraði boltann í netið á 71. mínútu. Luke Rae skoraði svo fimmta mark KR á 83. mínútu eftir að Ástbjörn Þórðarson sendi á hann. Staðan í efri hlutanum Víkingur Reykjavík – 53 stig…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS