Kosið í Svíþjóð á sunnudag - mjótt á munum og stefnir í langa ríkisstjórnarmyndun
What the source reports
Óvænt spenna hefur færst í kosningarnar í Svíþjóð sem fara fram á sunnudag. Hægri blokkin sem hefur verið við völd síðustu fjögur ár hefur verið langt á eftir þeirri vinstri í könnunum, en það er nú að breytast. Í kosningunum árið 2022 bar hægri blokkin nauman sigur úr býtum, fékk 176 þingmenn á meðan rauðgræna blokkin fékk 173 þingmenn. Ulf Kristersson leiðtogi Moderaterna, varð forsætisráðherra í minnihlutastjórn með Kristilegum demókrötum og Frjálslynda flokknum. Svíþjóðardemókratar, sem voru með harða innflytjendastefnum og miklar umbætur gegn skipulagðri glæpastarfsemi, vörðu ríkisstjórnina vantrausti. Stóru málin í kosningunum voru aðgerðir gegn glæpastarfsemi og innflytjendamál, auk þess sem orkumál og loftslagsmál var töluvert á góma. Gunnhildur Lily Magnúsdóttir dósent í stjórnmálafræði við háskólann í Malmö segir að stærstu málin síðast hafi færst töluvert neðar á listann núna.
Þingkosningar fara fram í Svíþjóð á sunnudag. Fyrir nokkrum viku voru allar líkur á valdaskiptum í landinu eftir kosningarnar, en nú er mun tvísýnna hvernig kosningarnar fara. „Áherslan núna hjá kjósendum virðist vera meiri á þessi hefðbundnu velferðarmál - heilbrigðiskerfið, menntamál, efnahagsmál og skattalækkanir- og hækkanir. Lög og regla eru ennþá tiltölulega ofarlega á lista en alls ekki eins mikið og fyrir fjórum árum. Umhverfismál hafa færst ofar á listann. Það sem kannski kemur mér á óvart er að varnarmál eru ekki jafn ofarlega á lista og maður gæti haldið,“ Það stefnir í góða kosningaþátttöku. Tölur sem voru birtar í byrjun vikunnar gáfu til kynna að rúmar tvær milljónir manna höfðu kosið utan kjörfundar, sem er 25% aukning frá kosningunum árið 2022. Kjörsókn í þeim kosningum var rúmlega 84%. Fyrir nokkrum vikum var fátt sem benti til annars en að rauða blokkin myndi vinna…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗